Virðing


Í Álfaborg og Valsárskóla mætum við ávallt hvort öðru með virðingu, þó að við séum ólík, af ólíkum uppruna, með mismunandi skoðanir og í ólíkum hlutverkum. 

Við erum öll mikilvæg og nám okkar og störf skipta máli.

Við sýnum umhverfinu okkar, efniviði, verkum og eigum okkar og annarra virðingu. 

Við temjum okkur að tala ávalt vel um annað fólk og okkur sjálf.