Viðmið um ástundun

Valsárskóla hafa verið mótuð viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn. Ferlið hefur verið rætt á kennarafundum og í skólaráði og hefur jafnframt verið staðfest af skólanefnd. 

Í þessu samhengi viljum við einnig minna foreldra á að nýta skóladagatalið við skipulagningu ferðalaga og frídaga. Í dagatalinu kemur skýrt fram hvenær ekki er skólastarf, svo sem í haustfríi, vetrarfríi, jólafríi, páskafríi og sumarfríi.

Viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn 

Þrep 1 
1–10 fjarvistir úr kennslustund án skýringa.
Umsjónarkennari hefur samband við foreldra. 

Þrep 2 
15 veikinda-/leyfisdagar 15 fjarvistir úr kennslustund án skýringa.
Fundur með foreldrum og nemanda. Úrbætur ræddar. 

Þrep 3 
20 veikinda-/leyfisdagar 20 fjarvistir úr kennslustund án skýringa.
Fundur með skólastjóra og áætlun gerð fyrir næstu 4 vikur. 

Þrep 4 
21 veikinda-/leyfisdagar 21 fjarvistir úr kennslustund án skýringa. 
Aðkoma skólaþjónustu eða velferðarsviðs. 

Þrep 5 
Ef ekki næst árangur: Málinu vísað til barnaverndar. 

Tekið er tillit til langveikra nemenda og sérstakra aðstæðna.