Skólinn er opinn frá klukkan 07:45 – 16:15 virka daga en lokaður um helgar.
Sími: 4645510
Netfang: valsarskoli@svalbardsstond.is, skolastjori@svalbardsstrond.is, maria@svalbardsstrond.is
Heimasíða: http://www.skolar.svalbardsstrond.is
Skólaakstur
Ekið er skv. tímatöflu sem birt er á heimasíðu skólans og send á heimilin sem nota skólaakstur fyrir skólasetningu. Mikilvægt er að nemendur komi á sína stoppistöð á réttum tíma. Skólabíllinn er einungis ætlaður nemendum grunnskólans. Ekki er ætlast til að nemendur leikskólans komi með eldri systkinum í skólabílnum. Skólastjóri getur þó leyft slíkt í undantekningartilvikum.
-
Forföll nemenda þarf að skrá í Mentor eða tilkynna í skólann, s. 4645510 og til skólabílstjóra s. 858 0777.
-
Ferðir frá skóla eru 10 mínútum eftir lok síðustu kennslustundar.
-
Athugið að ekki er hægt að reikna með að skólabíllinn geti tekið fleiri farþega en gert er ráð fyrir í áætlun.
-
Hafa skal samband við bílstjóra ef fjölga á farþegum af einhverjum ástæðum, (t.d. afmælisboð) til að athuga hvort laust er með bílnum.
Gestir með nemendum
Frá og með ágúst 2024 eru allir gestanemendur afþakkaðir.
Afmæli
Ekki er leyfilegt að koma með veitingar í skólann og þess vegna geta nemendur ekki boðið upp á veitingar þegar þeir eiga afmæli.
Ábyrgð á fjármunum og persónulegum eigum
Nemendur bera sjálfir ábyrgð á fjármunum og persónulegum eigum sínum í skólanum. Nemendur eiga ekki að koma með peninga í skólann að óþörfu og eiga ekki að skilja verðmæti eftir í fötum sínum á göngum eða í búningsklefum.
Það er á ábyrgð foreldra/forráðamanna að merkja vel allan fatnað. Merktur fatnaður skilar sér best. Óskilamunir eru geymdir í körfum í anddyri skólans. Nokkrum sinnum á ári eru óskilamunir lagðir fram til sýnis í skólanum s.s. á samtalsdögum og við skólaslit að vori og eru foreldrar sérstaklega hvattir til að huga að munum barna sinna.
Ábyrgð nemenda á eigin námi
Nemendur bera ábyrgð á námi sínu (skv. IV. kafla 14. gr. lögum um grunnskóla) með stuðningi kennara og foreldra og allt samstarf er því mikilvægt og stuðlar að metnaði nemenda til að stunda nám sitt af alúð.
Leyfi nemenda
Ef nemandi þarf leyfi getur umsjónarkennari gefið leyfi í einn eða tvo daga. Leyfi í 3 daga eða lengur skal sækja um til skólastjóra á eyðublaði. Eyðublað má finna á vefsíðu skólans.
Forföll í tónlistardeild þarf ekki að tilkynna ef búið er að tilkynna forföll í skólanum en forföll í skólaakstri þarf að tilkynna í síma 8580777.
Heimsóknir eftir skóla
Þegar nemendur fara í heimsóknir hver til annars eftir skóla, þurfa þeir að vera búnir að fá leyfi hjá foreldrum áður en þeir koma í skólann. Einnig þarf að kanna hvort pláss sé í skólabíl. Slíkt er alfarið á ábyrgð foreldra.
Lyfjagjafir í skólanum
Í tilmælum frá landlækni um lyfjagjafir í grunnskólum frá maí 1999 kemur meðal annars fram að foreldrum/forráðamönnum ber að afhenda hjúkrunarfræðingum, umsjónarkennara eða skólastjóra þau lyf sem börn og unglingar eiga að fá í skólanum. Börn og unglingar eiga aldrei vera sendiboðar með lyf. Sjá nánari upplýsingar á síðu landlæknis.
Foreldrar/forráðamenn þeirra barna og unglinga sem þurfa að taka lyf á skólatíma eru vinsamlega beðnir að hafa samband við hjúkrunarfræðinga skólans til skrafs og ráðagerða um hvernig best verði komið til móts við þessi tilmæli.
Starfsfólk gefur nemendum aldrei lyf nema í samráði við foreldra.
Meðferð námsgagna og eigur skólans
Skólinn lætur í té öll námsgögn sem nemendur þurfa að nota við nám sitt. Þeir taka ábyrgð á því og eiga að fara vel með þau. Nemendur og forráðamenn þeirra eru ábyrgir fyrir því tjóni sem nemendur kunna að valda á eigum skólans.
Notkun snjalltækja og síma
Valsárskóli er símalaus skóli frá og með haustinu 2024. Almenna reglan verður sú að nemendur koma ekki með síma í skólann. Ef foreldrar telja þörf á að barnið fái að geyma símann í skólanum frá mætingu til heimferðar þarf að hafa samband við skólastjóra og óska sérstaklega eftir því. Skólastjóri mun þá senda viðkomandi foreldri eyðublað sem foreldrar, barn og skólastjóri skrifa undir. Þeir sem fá þessa undanþágu þurfa að fara eftir eftirfarandi reglum:
-
Barn afhendir starfsmanni á kaffistofu símann um leið og það mætir í skólann.
-
Síminn er geymdur á kaffistofu starfsmanna til skólaloka.
-
Síminn á að vera hljóðlaus
-
Í lok skóladags fær barnið símann afhentan af starfsmanni á kaffistofu.
-
Ekki er leyfilegt að nota símann innan skólans.
Ef brot verður á símareglum skólans afhenda nemendur símann og hann er geymdur inn á kaffistofu starfsmanna og haft samband við foreldra sem geta nálgast hann eftir að skóla lýkur.
Foreldrar geta alltaf haft samband við skrifstofu skólans ef þarf að koma skilaboðum til nemenda.
Eldgos og jarðskjálftar
Starfsfólk fer eftir reglum og upplýsingum frá Almannavörnum ef náttúruvá s.s. jarðskjálftar verða. Lagt er upp úr því að fræða nemendur, skapa umræðu og sýna nemendum upplýsingar frá Almannavörnum. Farið er yfir helstu atriði á bekkjarfundum í september og á starfsmannafundum að haust.
Veikindafaraldrar
Ef forföll starfsfólks eru það mikil að þau hafi áhrif á kennslu eru hópar sameinaðir í kennslu. Farið er eftir tilmælum landlæknis og reglugerðum í faröldrum líkt og sett var í heimsfaraldri COVID. Til eru gögn sem hægt er að grípa til ef t.d. þarf að skipta skólanum upp í sóttvarnarhólf og takmarka skólastarf.
Óveður eða ófærð
Þar sem skólinn ber ábyrgð á nemendum á leið í og úr skóla getur þurft að fella niður skólastarf vegna veðurs. Ef veður er svo slæmt að það þurfi að fella niður kennslu í grunnskólanum er foreldrum/forráðamönnum sent sms í skráða farsíma fyrir klukkan 7:30. Eins verður sett inn tilkynning á heimasíðu og facebooksíðu skólans.
Ef veður er tvísýnt metur skólastjóri í samráði við skólabílstjóra, mokstursaðila og fleiri hvort skólabíll sækir börn.
Ef talið er að það sé áhætta er skóla aflýst. Skólastjóri notar litakerfi veðurstofunnar til viðmiðunar:
Gul viðvörun - reikna má með skólastarfi nema aðstæður og færð verði verri en gert var ráð fyrir.
Appelsínugul viðvörun - veður og færð metin að morgni.
Rauð viðvörun - skóla aflýst þegar viðvörun er gefin út.
Símtöl
Nemendur geta fengið að hringja og foreldrar geta jafnframt komið boðum til barna sinna með því að hringja í aðalnúmer skólans.
Skólahúsnæði
Hver bekkur hefur sína heimastofu, allar á efri hæð hússins. Þar er einnig skrifstofa, vinnurými kennara, kaffistofa starfsfólks, textíl- og myndmenntastofa, fundarherbergi og rými fyrir unglingastigið. Á neðri hæð hússins er matsalur, eldhús, íþróttasalur, tónlistarstofur og aðstaða frístundar. Að auki er kennt í sundlauginni haust og vor. Heimilisfræðival er kennd í eldhúsi skólans og smíðar eru kenndar í rými á milli skrifstofu sveitarfélagsins og leikskólans.
Skólalóð
Leiksvæði nemenda er kringum skólahúsið. Þar eru leiktæki, ærslabelgur og boltavellir. Nemendum er óheimilt að fara út fyrir skólalóðina á skólatíma nema með leyfi eða í umsjón kennara. Skólalóðin er lokuð fyrir krakka á eigin vegum þegar Vinaborg er opin.
Slys / óhapp
Í stórum barnahópi geta alltaf orðið óhöpp eða slys. Ef slíkt kemur fyrir höfum við strax samband við foreldra / forráðamenn eða hringjum á sjúkrabíl.
Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forráðamenn fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins.
Veikindi
Í skólanum er ekki aðstaða til að sinna veikum börnum. Veik börn eru viðkvæm og vansæl og þess vegna eiga þau ekki að koma í skólann þegar þau eru lasin. Nemandi á að vera hitalaus heima í a.m.k. 1 - 2 sólarhringa. Þegar nemandi kemur í skólann er ætlast til að hann geti tekið þátt í öllu daglegu starfi. Ef þörf er á undantekningin vegna einhverra sérstakra tilfella eru foreldrar beðnir að hafa samband við skólastjóra.
Útivist / klæðnaður
Nemendur í 1. - 6. bekk fara út í frímínútur daglega. Kennsla fer stundum fram utandyra, ýmist á skólalóð eða í næsta nágrenni. Brýnt er að nemendur klæði sig eftir veðri hverju sinni þannig að þeir geti notið útivistarinnar í leik og námi. Æskilegt er að nemendur í 1.-4. bekk séu með aukaföt í skólanum. Nemendur í 7 - 10. bekk geta valið hvort þeir fara út í frítíma. Þau hafa aðgang að íþróttasal, Bakka sem er setustofa og í hluta matsals en þar er Poolborð og fótboltaspil. .
Móttaka nýrra nemenda
Við móttöku nýrra nemenda er lögð áhersla á hlýjar móttökur og skýrar upplýsingar. Nemandinn og foreldrar eru boðuð í heimsókn í skólann áður en kennsla hefst að hausti. Við komu nýs nemanda í bekk er sérstaklega stuðlað að því að hann tengist þeim sem fyrir eru og er þá m.a. einum eða fleiri nemendum falið það hlutverk að fylgja honum um skólann fyrstu dagana og bjóða honum að vera með í frímínútum. Á heimasíðu skólans er hægt að finna áætlun um móttöku nýrra nemenda:
https://skolar.svalbardsstrond.is/is/valsarskoli/aaetlanir/mottaka-nyrra-nemenda
Rýmingaráætlun
Búið er að tímasetja tvær rýmingaræfingar á skólaárinu og uppfæra rýmingaráætlun. Skólinn verður rýmdur tvisvar á skólaárinu 2025-2026 samkvæmt áætlun. Önnur æfingin verður óundirbúin og hin undirbúin.