Kæru foreldrar og forráðamenn
Þessa dagana erum við að undirbúa skólastarfið og að nemendur mæti aftur í skólann.
Skólasetning
Skólasetning verður fimmtudaginn 20. ágúst kl. 16:15 á sal Valsárskóla. Við hlökkum til að hitta ykkur og vonumst til að sjá sem flesta. Pylsusala verður á vegum ferðasjóðs að setningu lokinni, pylsa á 500 kr og drykkir á 300 kr.
Skólabyrjun
Skólinn hefst með haust- og útivistardögum föstudaginn 21. ágúst og mánudaginn 24. ágúst. Þá verðum við sem mest úti og vonum að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir. Mikilvægt er að nemendur séu klæddir eftir veðri þessa daga. Skóla lýkur kl: 13:00 á haustdögum og kennsla verður síðan samkvæmt stundaskrá frá og með þriðjudegi.
Skólabíllinn
Áætlun fyrir skólaakstur vetrarins verður send í næstu viku á þau heimili sem nýta bílinn. Sú áætlun fer líka á heimasíðu skólans en gæti verið uppfærð eftir 1-2 vikur ef tímasetningar passa ekki. Við hvetjum ykkur til að hafa samband ef þið sjáið að áætlunin gengur ekki upp.
Vinaborg
Við erum að vinna í að manna Vinaborg og ekki ljóst enn hver verður umsjónarmaður. Gert er ráð fyrir að starfsemin hefjist fimmtudaginn 20. ágúst, en þá er heill dagur, og eftir það verður hún opin 13:15 til 16:15. Allir þeir sem ætla að nýta Vinaborg eru hvattir til að skrá börnin í gegnum rafrænt form sem verður sent á heimilin fljótlega. Nánari upplýsingar um Vinaborg eru á heimasíðu skólans.
Símalaus skóli
Almenna reglan er sú að nemendur koma ekki með síma í skólann. Ef foreldrar telja þörf á að barnið fái að geyma símann í skólanum frá mætingu til heimferðar þarf að hafa samband við skólastjóra og óska sérstaklega eftir því. Skólastjóri mun þá senda viðkomandi foreldri eyðublað sem foreldrar, barn og skólastjóri skrifa undir. Þeir sem fá þessa undanþágu þurfa að fara eftir eftirfarandi reglum:
-
Barn afhendir starfsmanni á kaffistofu símann um leið og það mætir í skólann.
-
Síminn er geymdur á kaffistofu starfsmanna til skólaloka og á að vera á hljóðlausri stillingu.
-
Í lok skóladags fær barnið símann afhentan af starfsmanni á kaffistofu.
Ef brot verður á símareglum skólans afhenda nemendur símann og hann er geymdur inn á kaffistofu starfsmanna og haft samband við foreldra sem geta nálgast hann eftir að skóla lýkur.
Tónlistarskóli Eyjafjarðar
Kennarar í Tónlistarskóla Eyjafjarðar koma hingað til að kenna nemendum. Kennslan fer þannig fram að sumir nemendur fara úr kennslustundum í tónlistartíma, aðrir úr Vinaborg og enn aðrir fara eftir kennslu í Valsárskóla. Tekið er tillit til nemenda sem nota skólabíl. Skipulagið er þannig að þeir sem fara úr hefðbundnum kennslustundum fara ekki alltaf úr sömu kennslustund en eru alltaf í tónlistarnámi á sömu vikudögum.
Mentor
Mentor er það kerfi sem við notum til að halda utan um skólastarfið s.s. mætingar, stundatöflur, námsmat o.fl. Til að upplýsingar frá skólanum skili sér örugglega til ykkar er mikilvægt að yfirfara símanúmer, netföng og fleira. Einfaldast er að aðstandendur fari inn á mentor og þar inn á fjölskylduflísina, smelli þar á flipann Aðstandendur og lesi yfir og uppfæri eins og þarf. Þar er einnig hægt að bæta við aðstandendum. Þeir foreldrar sem eru að byrja með barn í skóla er bent á að skoða bækling um Mentor sem er aðgengilegur á heimasíðu skólans.
Skóladagatal
Skóladagatal Valsárskóla er aðgengilegt á heimasíðu skólans og þar eru einnig upplýsingar um skólann. Flest heimili fengu skóladagatal í vor, ásamt skýringum og hvetjum við ykkur til að hafa það við hendina. Ef það hefur glatast, hafið samband og við sendum ykkur nýtt sem fyrst. Ég vek athygli á því að búið er að gera eina breytingu á skóladagatalinu og það varðar sundkennsluna. Við ætlum að hafa sundkennsluna aðeins lengur að hausti, fram að haustfríi í október, og byrja hana aðeins seinna að vorinu. Við minnum ykkur á þetta þegar að því kemur. Skóladagatal
Mætingar í skólann og leyfi
Við viljum minna foreldra á að skipuleggja ferðalög og frí eins og hægt er m.t.t. skóladagatalsins. Ef nemandi þarf stutt leyfi þarf að hafa beint samband við umsjónarkennara. Ef leyfið er lengra en 3 dagar þarf að senda tölvupóst á skólastjóra á netfangið svala@svalbardsstrond.is
Á síðasta skólaári voru samþykkt viðmið um ástundun og hvetjum við alla foreldra til að kynna sér það nánar á heimasíðu skólans
Veikindi nemenda
Foreldrar þurfa að tilkynna veikindi nemenda og er hægt að gera það með því að hringja í skólann eða skrá það í Mentor. Athugið að veikindi þarf að skrá daglega. Við minnum foreldra líka á að senda nemendur ekki í skólann nema þeir geti tekið þátt í öllu skólastarfinu.
Gott samstarf heimila og skóla
Við hvetjum ykkur til að vera í sambandi við umsjónarkennara, skólastjóra og annað starfsfólk eftir hvað hentar hverju tilefni. Hægt er að senda tölvupóst eða hringja í skólann og óska eftir samtali.