Nú þegar skólaárinu er lokið viljum við þakka skólasamfélaginu fyrir gott samstarf á liðnu skólaári. Það hefur verið ánægjulegt að vinna með nemendum og fylgjast með þeim þroskast, læra og dafna í skólastarfinu. Megi sumarið færa ykkur góða hvíld, ánægjulegar stundir og endurnæringu fyrir komandi vetur.
Við hlökkum til að hitta nemendur aftur á skólasetningu þann 20. ágúst, endurnærða og tilbúna til að takast á við nýtt og spennandi skólaár eftir gott sumarfrí. Við hlökkum til að halda áfram góðu samstarfi við ykkur á komandi skólaári.
Vorskýrsla Valsárskóla, með áherslu á innra mat, er tilbúin. Búið er að bera hana undir skólaráð og samþykkja í skólanefnd. Hægt er að kynna sér hana hér.