Vordagar í Valsárskóla og skólaslit 2025

Nú styttist í skólaárinu 2024-2025 í Valsárskóla. Miðvikudagurinn 28. maí verður síðasti skóladagurinn samkvæmt stundaskrá og svo taka við vordagar, vorhátíð, skólaslit og sumarfrí hjá nemendum. Hér er stutt yfirlit yfir dagana svo allir séu undirbúnir í útivist og klæddir fyrir það sem við tökum okkur fyrir hendur.   

2. - 4. júní lýkur skóla kl. 13:00 og nemendur fara heim eða í Vinaborg. Skólabíll fer 13:10 frá skólanum. 

Föstudagurinn 30. maí er starfsdagur í Valsárskóla og nemendur í fríi. Vinaborg er opin fyrir skráða nemendur. Foreldrar hafa nú þegar fengið rafrænt skráningarform.  

Mánudagurinn 2. júní verða umsjónahópar saman og taka sér ýmis verkefni fyrir hendur. Umsjónarkennarar gefa nánari upplýsingar um fyrirkomulag. 

Þriðjudaginn 3. júní verðum við öll í Kjarnaskógi í ratleik og gerum margt skemmtilegt. Við borðum nesti í skóginum sem við tökum með okkur úr skólanum.

Miðvikudaginn 4. júní er vorhátíð á skólalóð með margskonar leikjastöðvum, hefðbundnum kappleikjum s.s. reiptogi, eggjakast og fleiru. Fastur liður í þeirri dagskrá er fótbolti milli námshópa og starfsfólks sem alltaf er æsispennandi. Við endum svo vorhátíðina á árlegum vatnsslag sem enginn kemst þurr frá. Í vatnsslagnum er hentugast að vera með litla dalla eða fötur. Tekið skal fram að ekki er í boði að vera með einhvers konar vopn í slagnum s.s. vatnsbyssur eða einhverskonar dælur. Vatnsblöðrur eru líka á bannlista. Það skal samt tekið fram að ef einhver vill ekki taka þátt í vatnsslag er ákveðið ,,þurrsvæði” þar sem hægt er að vera á. Gott er að hafa með sér handklæði og auka föt þennan dag.   

Miðvikudaginn 4. júní kl. 16:15 eru skólaslit á sal. Þangað eru allir foreldrar og aðstandendur nemenda velkomnir. Þar verður öllum nemendum afhent námsmat, nemendur í 10. bekk útskrifaðir og skólanum slitið. Að dagskrá lokinni er ferðasjóður með veitingasölu í matsalnum. Ekki er skólaakstur á skólaslit.