Bólusetning við COVID-19 fyrir nemendur í 7.-10. bekk
Nú í ágúst verður boðið upp á bólusetningu gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 12-15 ára.
Bólusetningar á Akureyri fara fram fimmtudaginn 19. ágúst kl: 13:00 -16:00 á Slökkvistöð Akureyrar. Forráðamaður sem óskar eftir bólusetningu fyrir barn sitt þarf að fylgja barni í bólusetninguna eða senda staðgengil 18 ára eða eldri með umboð. Börnum í 7. bekk sem verða 12 ára eftir 1. september býðst bólusetning síðar í haust.
Bóluefnið sem verður notað er frá Pfizer/BioNTech og er það bóluefni sem fyrst fékk markaðsleyfi, bæði fyrir fullorðna og síðar fyrir börn á þessum aldri. Það er komin töluverð reynsla á notkun þess fyrir þennan aldurshóp erlendis og hefur gengið mjög vel.
Eins og við aðrar bólusetningar eru algengustu aukaverkanir óþægindi þar sem stungan var gerð og slappleiki/þreyta, hiti og verkir (höfuðverkur eða vöðva- og liðverkir) fyrsta sólarhringinn eftir bólusetninguna, stundum í nokkra daga. Það má nota parasetamól eða íbúprófen í skömmtum skv. fylgiseðli við þessum aukaverkunum.
Það eru líka til sjaldgæfar aukaverkanir þar sem kemur fram bólga í gollurshúsi (poki utan um hjartað) eða í hjartavöðvanum sjálfum, 2-3 vikum eftir bólusetninguna, oftast eftir seinni skammt og algengara hjá piltum en stúlkum. Þótt þessar aukaverkanir geti verið óþægilegar og jafnvel uggvekjandi, þá jafnar ástandið sig oftast með hvíld og bólgueyðandi verkjalyfjum. Ef barn fær brjóstverk, talar um skrítinn hjartslátt eða virðist andstutt í hvíld eftir bólusetninguna þarf að leita til læknis.
Það er verið að skoða hvort breytingar á tíðahring, bæði litlar eða miklar blæðingar, hafi tengsl við bólusetningu með þessu bóluefni. Stúlkur á aldrinum 12-15 ára hafa sumar þegar byrjað á blæðingum en aðrar ekki. Það er ekki víst að allar stúlkur á þessum aldri átti sig á því ef breytingar verða þar sem blæðingar eru yfirleitt óreglulegar fyrsta árið eftir að þær hefjast. Eins finnst þeim mörgum óþægilegt að ræða um slíkt og láta ekki endilega vita ef eitthvað er öðruvísi en áður. Það er því mikilvægt að þær fái upplýsingar um að það sé rétt að ræða þetta og hafi tækifæri til að gera það, ef ekki heima þá mögulega við skólahjúkrunarfræðing eða annan heilbrigðisstarfsmann.
Álfaborg Svalbarðseyri | 606 Akureyri Sími: 464 5505 Netfang: alfaborg@svalbardsstrond.is |
Valsárskóli Svalbarðseyri | 606 Akureyri Sími: 464 5510 Netfang: valsarskoli@svalbardsstrond.is |
Tónlistarskóli Eyjafjarðar
Sími 464 8110 |
Vinaborg - frístund Sími 832 4530 Skólabíll Sími: 858 0777
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda skráist hjá skólanum eða á mentor.is.