Valsárskóli - skólabyrjun

Nú styttist í að nýtt skólaár hefjist og erum við spennt að fá nemendur í hús. Þessa dagana erum við að undirbúa skólastarfið ásamt sí- og endurmenntun. 

Skólasetning
Skólasetning verður þriðjudaginn 22. ágúst kl. 16:15 á sal Valsárskóla. Við hlökkum til að hitta ykkur og vonumst til að sjá sem flesta. Líklega verður veitingasala á vegum ferðasjóðs.     

Skólabyrjun
Skólinn hefst með haust- og útivistardögum miðvikudagi 23. ágúst og fimmtudaginn 24.ágúst og munum við verða sem mest úti með nemendum miðvikudag og fimmtudag. Gott er að nemendur hugi að því vera klæddir eftir veðri. Þá tvo daga lýkur skólanum kl: 13:00. Hefðbundið skólastarf hefst svo föstudaginn 25. ágúst samkvæmt stundaskrá. 

Skólabíllinn
Áætlun fyrir skólabílinn er klár og verður send á þau heimili sem nýta bílinn í vikunni. Sú áætlun fer líka á heimasíðu skólans en gæti verið uppfærð eftir 1-2 vikur ef tímasetningar passa ekki. Við hvetjum ykkur til að hafa samband ef þið sjáið að áætlunin er óhagstæð. 

Vinaborg
Vinaborg hefur starfsemi þriðjudaginn 22. ágúst og er opin allan þann dag. Eftir það verður hún opin daglega eftir kennslu til 16:15. Allir þeir sem ætla að nýta Vinaborg eru hvattir til að skrá sín börn í gegnum rafrænt form sem verður sent á heimilin í dag. Öll heimili nemenda í 1. - 4. bekk fá tölvupóst með nánari upplýsingum um Vinaborg og starfið þar á næstu dögum. 

https://skolar.svalbardsstrond.is/is/valsarskoli/umsokn-um-vistun-i-vinaborg

Tónlistarskóli Eyjafjarðar
Kennarar í Tónlistarskóla Eyjafjarðar koma hér til að skipuleggja starfið. Kennslan fer þannig fram að sumir nemendur fara úr kennslustundum í tónlistartíma, aðrir úr Vinaborg og enn aðrir fara eftir kennslu í Valsárskóla. Tekið er tillit til nemenda sem nota skólabíl. Skipulagið er þannig að þeir sem fara úr hefðbundnum kennslustundum fara ekki alltaf úr sömu kennslustund en eru alltaf í tónlistarnámi á sömu vikudögum.  

Kennaranemi
Við erum svo heppin að hafa hjá okkur kennaranema í vetur í 15 vikur. Hún heitir Arndís Ósk Arnarsdóttir og er á kandídatsári í starfsnámi. Arndís mun fylgja Svölu og vinna/kenna/nema mestu í 3. - 4. bekk.

Mentor
Mentor er það kerfi sem við notum til að halda utan um skólastarfið s.s. mætingar, stundatöflur, námsmat o.fl. Til að upplýsingar frá skólanum skili sér örugglega til ykkar er mikilvæg að yfirfara símanúmer, netföng og fleira. Einfaldast er að aðstandendur fari inn á fjölskylduflísina, smelli þar á flipann Aðstandendur og lesi yfir og uppfæri eins og þarf. Þar er einnig hægt að bæta við aðstandendum. Þeir foreldrar sem eru að byrja með barn í skóla er bent á að skoða bækling um Mentor sem er aðgengilegur á heimasíðu skólans. 
https://www.infomentor.is/wp-content/uploads/2022/08/handbok-fyrir-adstandendur_mars2022.pdf    

Skóladagatal
Skóladagatal Valsárskóla er aðgengilegt á heimasíðu skólans og þar eru einnig upplýsingar um skólann. Flest heimili fengu skóladagatal í vor, ásamt skýringum, og hvetjum við ykkur til að hafa það við hendina. Ef það hefur glatast, hafið samband og við sendum ykkur nýtt sem fyrst.

https://skolar.svalbardsstrond.is/static/files/skoladagatal-2023-2024-valsarskoli-skoladagatal-2-.pdf   

Við hvetjum ykkur til að vera í sambandi við umsjónarkennara, skólastjóra og annað starfsfólk ef eitthvað er óljóst í skólastarfinu. Við sem störfum í skólanum sjáum kannski ekki alltaf hvaða upplýsingar vantar. Þægilegt er að senda tölvupóst eða hringja í skólann.

Mætingar í skólann og leyfi
Við minna foreldra á að skipuleggja ferðalög og frí eins og hægt er m.t.t. skóladagatalsins. Ef nemandi þarf stutt leyfi er best að hafa beint samband við umsjónarkennara. Ef leyfið er 3 dagar eða lengra er best að senda tölvupóst á skólastjóra eða nota heimasíðuna: https://skolar.svalbardsstrond.is/is/valsarskoli/foreldrar/beidni-um-leyfi-nemanda 

Við minnum foreldra líka á að senda nemendur ekki í skólann nema þeir geti tekið þátt í öllu skólastarfinu.