Útskriftarhópurinn upp í Reit
Það var sannkölluð hátíðarstund þegar elstu börnin okkar voru útskrifuð og kvödd í lok leikskólagöngunnar upp í Reit. Að þessu sinni útskrifuðust níu glæsileg börn sem halda nú áfram á nýjar slóðir í Valsárskóla. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju og velfarnaðar á komandi skólagöngu.
Að útskriftinni lokinni tók við skemmtileg sumarhátíð á vegum foreldrafélagsins. Þar komu fjölskyldur saman og nutu góðrar stundar í leik og gleði. Boðið var upp á grillaðar pylsur sem nutu mikilla vinsælda, börnin gátu fengið fallega andlitsmálningu og hoppukastali vakti að vanda mikla lukku.
Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir frábært framtak og öllum þeim sem tóku þátt í að gera daginn svo eftirminnilegan. Það er dýrmætt að ljúka skólaárinu með svona notalegri samveru og gleði.
Við óskum útskriftarbörnunum okkar góðs gengis í Valsárskóla og hlökkum til að fylgjast með þeim blómstra á nýjum vettvangi.