Sumarkveðja frá Álfaborg

Kæru foreldrar og fjölskyldur,
 
Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars og þökkum kærlega fyrir frábært samstarf á liðnu skólaári, við vonum að þið eigið yndislegar samverustundir í sumarfríinu.
 
Hlökkum til að sjá ykkur aftur sólbrún og glöð þegar leikskólinn opnar mánudaginn 10. ágúst kl. 10:00.
 
Meðfylgjandi er mynd af fyrstu skóflustungunni sem var tekin að byggingu nýrrar viðbyggingu við leikskólann Álfaborg fyrr í júní. Nemendur hafa fylgst spenntir með framkvæmdunum og það verður gaman að sjá hvernig gengur þegar við mætum aftur til baka.
 
Sumar- og sólarkveðjur,
starfsfólkið í Álfaborg