Sumarhátíð foreldrafélagsins og útskrift úr Álfaborg

Sumarhátíð foreldrafélagins í Álfaborg var haldin í gær í frábæru veðri upp í Reit, grillaðar voru pylsur, andlitsmálning í boði og hoppukastali fyrir börnin. Mikið var um líf og fjör og gaman að fá að njóta samverunnar með foreldrum og við viljum þakka foreldrafélaginu kærlega fyrir vel heppnaða hátíð.

Í byrjun sumarhátíðarinnar fór fram útskrift Krummahópsins en að þessu sinni vorum við að útskrifa 10 nemendur sem munu byrja skólagöngu sína í Valsárskóla í haust. Við útskriftina fengu nemendur afhent útskriftarskjal, ferilmöppuna sína og birkiplöntu að gjöf frá leikskólanum.

Framtíð þessara nemenda er björt og óskum við þeim öllum innilega til hamingju með áfangann.

Bestu kveðjur frá Álfaborg