Styrkur frá Sprotasjóði

Sprotasjóður veitti 30 skólaþróunarverkefnum styrki fyrir skólaárið 2025-2026. 

Valsárskóli í samstarfi við fjóra skóla á Norðurlandi eystra hlaut styrk til verkefnisins Bókmenntahátíð barnanna. Rithöfundarnir Þórunn Rakel Gylfadóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir leiða verkefnið og munu leiðbeina nemendum og kennurum í skapandi skrifum og bókagerð næsta vetur. Verkefninu lýkur með Bókmenntahátíð barnanna sem fer fram í Hrafnagilsskóla í desember 2025. 

Þeir skólar sem taka þátt í verkefninu með Valsárskóla eru Hrafnagilsskóla,  Grenivíkurskóli, Stórutjarnaskóli og Reykjahlíðarskóli.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. 

Umsýsla sjóðsins er hjá Rannís. Nánari upplýsingar má finna á vef Stjórnarráðs Íslands.