Stöðu- og framvinduprófum í íslensku og/eða stærðfræði í 4. - 10. bekk

Í mars tóku nemendur í 4. - 10. bekk stöðu- og framvinduprófum í íslensku og/eða stærðfræði. Prófunum er ætlað að veita nemendum, foreldrum og kennurum skýrar upplýsingar um stöðu og framfarir nemanda. Þessar upplýsingar nýtast í kennslu til að stuðla að framförum, t.a.m. með auknum stuðningi eða stærri áskorunum, allt eftir stöðu nemanda.

Foreldrar geta nálgast niðurstöður barns á mínum síðum á island.is frá og með 29. maí. Þar má sjá hvernig barn stendur í þeim þáttum sem prófað var úr og lýsingu á mikilvægum næstu skrefum í kennslu.  

Niðurstöðurnar sýna hvar barnið stendur í námi í samhengi við jafnaldra á landsvísu og gefa til kynna hvernig skólinn og heimili getum sem best stutt við nám þess framundan.  

Við hvetjum foreldra til að fara vel yfir niðurstöðurnar með sínu barninu þegar þær liggja fyrir. Ef foreldrar hafa spurningar eða vilt ræða niðurstöðurnar nánar skaltu ekki hika við að hafa samband við umsjónarkennara.

Ef niðurstöðurnar gefa góða stöðu til kynna mun umsjónarkennari ekki fara sérstaklega yfir þær með nemendum í vor en hann og aðrir kennarar munu nýta þær við skipulagningu kennslu í haust.

Ef niðurstöðurnar benda til þess að barnið gæti þurft á auknum stuðningi að halda munum við bjóða barninu og forsjáraðilum þess upp á samtal í vor eða haust um niðurstöðurnar og fara yfir næstu skref í námi út frá þeim.  

Hægt er að kynna sér stöðu- og framvinduprófin nánar á matsferill.is.