Dagana 2. - 5 mars munu flestir nemendur í 4. - 10. bekk í Valsárskóla taka stöðu- og framvindu próf í íslensku og stærðfræði. Prófin eru rafræn og koma frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Niðurstöður nemenda fara inn í svokallaðan Matsferil. Undanfarin ár hafa lesfimipróf eingöngu farið þar inn en nú bætast við tvö próf. Annarsvegar íslenskupróf, þar sem lögð er áhersla á lesskilning og svo hins vegar stærðfræði. Markmið með Matsferli er að nemendur, forsjáraðilar og skólar fá meiri og betri upplýsingar um stöðu og framvindu í námi og íslenskt skólakerfi. Tilgangur prófanna er einnig að afla og veita upplýsingar um stöðu nemenda í þessum greinum með samanburði við jafnaldra. Ekki hafa verið samræmd próf í nokkur ár á vegum yfirvalda. Gott er að muna að prófin mæla afmarkaða þætti og ekki allt skólastarfið.
Ekki er tilefni til þess að nemendur læri sérstaklega fyrir prófin en kennarar eru þessa dagana að leyfa þeim að prófa sýnispróf í stafræna prófakerfinu. Hér er slóðin inn á þau æfingapróf og hvetjum við alla til að kynna sér þau.
https://mms.prod.gcp-eu.taocloud.org/public-sessions/
Við leggjum áherslu á að nemendur leggi sig fram við próftökuna og geri sitt allra besta. Við erum ekki komin með upplýsingar hvenær niðurstöður liggja fyrir en munum láta ykkur vita þegar það er ljóst.
Nemendur í 4. bekk taka próf í:
íslensku kl. 8:30 mánudaginn 2. mars
stærðfræði kl. 8.30 miðvikudaginn 4. mars
Nemendur í 5. og 6. bekk taka próf:
íslensku kl. 10:15 mánudaginn 2. mars
stærðfræði kl. 10:15 miðvikudaginn 4. mars
Nemendur í 7. og 8. bekk taka próf:
íslensku kl. 8:30 þriðjudaginn 3. mars
stærðfræði kl. 8:30 fimmtudagur 5. mars
Nemendur í 9. og 10. bekk taka próf:
íslensku kl. 10:15 þriðjudaginn 3. mars
stærðfræði kl. 10:15 fimmtudagur 5. mars
Ef nemandi er veikur þegar prófin fara fram þá tekur hann þau föstudaginn 6. mars eða í vikunni 9. - 13. mars. Mikilvægt er að nemendur mæti í skólann á réttum tíma og munum við hnika til frítíma og morgunmat eftir þörfum þessa daga.
Áhugasamir geta lesið meira um prófin á þessari síðu:
https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/namsmat-matsferill