Miðvikudaginn 19. mars (ath. breyting frá prentuðu skóladagatali) ætlum við að hafa útivistardag uppi í Hlíðarfjalli fyrir alla nemendur Valsárskóla ásamt Grenivíkurskóla og e.t.v. fleirum.
Nemendur mæta á hefðbundnum tíma og áætlað er að rútan fari frá skólanum kl. 8.30 í síðasta lagi og þá verðum við tilbúin að skíða þegar lyfturnar opna kl.9:00.
Skólinn leigir skíði/bretti fyrir þá nemendur í 3.-10. bekk sem foreldrar óska eftir í könnun sem er hér að neðan.
Þeir sem yngri eru, eru vanir að fara á skíði og eiga sinn eigin útbúnað geta skíðað í brekkunum. Aðrir verða að koma með sleða eða þotur og leika sér í brekkunum eða rölta um svæðið. Allir sem ætla að renna sér, hvort sem er á skíðum eða sleða verða að vera með hjálm í fjallinu.
Allir fá morgunmat áður en lagt er af stað og um 11:30 fá allir samloku, kakó og ávexti. Ekki verður annar hádegismatur í skólanum þennan dag. Yngri nemendur koma seinna heim þennan dag þar sem við notum lyfturnar til u.þ.b. 13:00 og leggjum svo af stað heim. Skólabíll fer á hefðbundnum tíma eða 14:10.
Ef nemendur ætla að fá að verða eftir í fjallinu þurfa foreldrar að láta umsjónarkennara vita af því. Nemendur sem verða eftir eru þá ekki á vegum skólans frá 13:00. Ekki er alveg ljóst hvort nemendur sem skólinn leigir búnað fyrir, geta haft hann eftir 13:00 án gjalds. Foreldrar sem hafa tækifæri til eru velkomnir en þurfa að sjá um eigin búnað.
Mjög mikilvægt er að allir svari könnun sem fylgir með þannig við við vitum hvað við þurfum af búnaði og kortum í fjallið. Við þurfum að senda frá okkur upplýsingar í skíðaleiguna í síðasta lagi föstudaginn 14. mars og þess vegna þurfum við svör við þessu formi á næstu dögum. Undanfarin ár hefur borið á því að við erum að fá beiðnir um búnað fram á síðustu stundu og hefur það stundum skapað vandræði. Mikilvægt er er að yfirfara búnað sem nemendur eiga og máta skíðaklossa í tíma.