Samtalsdagur og haustfrí í Valsárskóla

Fimmtudaginn 17. október er samtalsdagur í Valsárskóla. Umsjónarkennarar eru þessa dagana að stofnað viðtalstíma í Mentor og opna fyrir bókanir 4. október. Inn á Mentor getið þið valið tímasetningu fyrir samtölin. Ef enginn tími er hentugur er auðvelt að hafa samband við umsjónarkennara og finna annan tíma.

Samtölin verða nemendastýrð líkt og síðustu skólaár. Almenn ánægja er með það fyrirkomulag.  

Skólastjóri er í vinnu á samtalsdegi, í haustfríi og á starfsdegi og er alltaf tilbúinn til skrafs og ráðagerða. Iðjuþjálfi og tengiliður farsældar verður í vinnu á samtalsdegi og geta foreldrar hitt á hana.  

Vinaborg er opin fyrrnefnda daga og hafa foreldrar nú þegar fengið rafrænt form til að nota til að skrá börn sín í vistun þessa daga. 

Föstudaginn 18. október er starfsdagur í Valsárskóla og nemendur í fríi.  

Mánudaginn 21. október og þriðjudaginn 22. október er haustfrí í Valsárskóla og þá eru kennarar og nemendur í fríi.  

Yfirlit
17. október - samtalsdagur í Valsárskóla og nemendur mæta með foreldrum
18. október - starfsdagur í Valsárskóla og nemendur í fríi
21. október - haustfrí
22. október - haustfrí