Fimmtudaginn 16. október er samtalsdagur í Valsárskóla og nemendur mæta með foreldrum til umsjónarkennara. Við reiknum með að allir séu búnir að bóka tíma eða hafa samband við umsjónakennara. Í framhaldinu á samtalsdeginum er starfsdagur og síðan haustfrí. Við vonum að allir geti gert sér dagamun í þessu fríi. Hefðbundin kennsla er næst miðvikudaginn 22. október.
Starfsáætlun Valsárskóla tilbúin fyrir skólaárið 2025-2026.
Búið er að staðfesta starfsáætlun fyrir Valsárskóla bæði í skólaráði og í skólanefnd. Í starfsáætlun má finna mikið af gagnlegum upplýsingum fyrir foreldra og skólasamfélagið s.s. stundatöflur námshópa, skóladagatal, áherslur í skólanum, skólareglur, upplýsingar um námskrá og fleira.
Hún er aðgengileg hér.