Rútínan

Leikskólinn opnaði aftur 10 ágúst eftir gott frí. Starfsmenn og börn komu endurnærð til baka og til í rútínuna sem fylgir því að vera í vinnu og leikskóla. 
Vinna við að stækka leikskólann er hafin og gengur vel að okkar mati. Börnin elska að hafa vinnumenn, gröfur og vörubíla og fylgjast spennt með þessum framkvæmdum. Spennandi tímar framundan hjá okkur og við erum spennt fyrir komandi leikskóla.
Njótið sólmyrkvans í kvöld, þetta er einstakt :)