Plokkdagurinn

Í síðustu viku var plokkdagurinn og tóku börnin í Álfaborg að sjálfsögðu þátt. Fyrir brottför fóru börnin í gulu vestin og fengu poka í hönd fyrir ruslið. Gengið var Smáratún og Laugartún en þau sem yngri voru tóku hring í kringum leikskólann og týndu það sem þau fundu þar. Allt gekk þetta vel og er þetta liður í því að hugsa vel  um umhverfið okkar og gera þau meðvituð um að þekkja rusl og það sem ekki á heima í náttúrunni okkar. Einnig er leikskólalóðin yfirfarin reglulega og taka börnin þá stundum þátt.     plokkdagur