Orðsporið 2021

„Leikskólastigið hefur staðið í ströngu undanfarið ár og mikið hefur mætt á kennurum, stjórnendum og öllu starfsfólki leikskólanna við að halda skólastarfi gangandi. Unnið hefur verið algjört þrekvirki á leikskólastiginu og fyrir það ber að þakka. Ég geri mér grein fyrir því að þetta hefur verið á tímum mjög erfitt. Þess vegna vil ég þakka öllum þeim sem starfa á leikskólastiginu fyrir þeirra vinnu. Þið eigið svo sannarlega skilið Orðsporið 2021, sagði Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra þegar hún tilkynnti um verðlaunin".