Ömmu og afa kaffi og slökkviliðið í heimsókn í Álfaborg

Reykkafari í fullum skrúða
Reykkafari í fullum skrúða

Á föstudaginn buðu börnin í Álfaborg öfum og ömmum í kaffi. Fjölmargir gestir komu og þáðu kleinur og pizzasnúða ásamt kaffi og djús. Þetta var mjög skemmtileg stund og þökkum við öllum þeim fjölmörgu ömmum, öfum og staðgenglum þeirra fyrir komuna.

Slökkviliðið kom síðasta þriðjudag til að hitta elsta árgang Álfaborgar, Krummahóp. Krummar fengu kynningu á slökkviliðinu og brunavörnum auk þess að horfa á stutta mynd um Björnis brunabangsa sem er stundum kallaður Bjössi brunabangsi á íslensku. Við fengum að sjá reykkafara í fullum skrúða með súrefnisgrímuna og allt. Sumum börnunum stóð ekki alveg á sama en þetta er einmitt gert til að þau verði síður hrædd ef þau þurfa björgun reykkafara einhvern tímann. Þessi heimsókn vakti mikla lukku hjá börnunum.