Ólympíuhlaup 30. september 2020

Á morgun kl. 10:35 munum við hlaupa Ólympíuhlaup og því er mikilvægt að nemendur koma í góðum skóm og léttum og þægilegum klæðnaði.

Ólympíuhlaup ÍSÍ áður Norræna skólahlaupið hefur verið fastur liður í skólastarfi margra
skóla allt frá 1984 þegar það fór fyrst fram. Þátttaka íslenskra grunnskólanemenda hefur
verið mjög góð og almenn í gegnum árin en hefur náð nýjum hæðum á undanförnum árum.
Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er eins og áður leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að
hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.
Nemendur geta nú sem áður valið á milli þriggja vegalengda í hlaupinu, þ.e. 2,5 km, 5 km eða
10 km. Hver skóli fær sent viðurkenningarskjal eins og áður þar sem greint verður frá fjölda þeirra sem
hlupu ásamt heildarvegalengd sem hlaupin var. Það skal tekið fram að með hlaupinu er fyrst
og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt.

Kær kveðja Harpa