Lestrarátakið okkar hefur verið í fullum gangi þessa vikuna og heldur áfram þá næstu. Nemendur hafa verið einstaklega duglegir að lesa og lestrargleðin hefur svo sannarlega látið á sér kræla!
Við tengjum lesturinn við vitann okkar, sjóinn og fjöruna. Fyrir hverja bók sem nemendur lesa fá þeir að bæta lífveru úr sjónum við stóru fjörumyndina okkar. Myndin er því smám saman að fyllast af fjölbreyttu lífríki og verður skemmtilegra að fylgjast með henni með hverjum deginum.
Lestrarátakið nær líka út fyrir veggi skólans og við hvetjum foreldra, ömmur, afa og aðra íbúa til að taka þátt. Fyrir hverja bók sem fullorðnir lesa geta þeir sent okkur orð, orðtak eða málshátt sem tengist sjónum eða fjörunni og verður það hluti af myndverkinu okkar.
Markmiðið er að efla lestraráhuga, skapa notalegar lestrarstundir og minna á að lestur er fyrir alla, unga sem aldna.
Við erum ótrúlega stolt af dugnaðinum hjá krökkunum og hlökkum til að sjá fjöruna okkar fyllast enn meira af lífi í næstu viku!
Höldum áfram að lesa og efla lestrargleðina saman!