Lestrarátak skólanna

2. november fór í gang lestrarátakið Vitinn. Þátttakendur eru nemendur og starfsmenn í báðum skólum sveitarfélagsins, Valsárskóla og leikskólanum Álfaborg en við hvetjum einnig foreldra og forráðamenn til að vera með og lesa sem mest. Átakið stendur í tvær og endar á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember með dagskrá í Valsárskóla. Þar munu nemendur stíga á stokk, veittar verða viðurkenningar og í lokin munum við gæða okkur á góðgæti sem Daníel og Anna í eldhúsinu reiða fram. Átakið snýst aðallega um lestur og lestraránægju og hvetjum við því alla til að lesa sem mest á þessum tíma. Að lesa sjálf, lesa fyrir börnin og með börnunum. Börnin skrá svo lesturinn og setja upp í sameiginlegt listaverk í skólanum. Starfsmenn skólanna eru líka hvattir til að skrá sinn lestur. Skemmtilegt verkefni :)