Leikskólakrakkar fylltu Hof af sönggleði

Á þriðjudag var líf og fjör í Hofi þegar Krummahópur steig á svið ásamt fjölda leikskólabarna og flutti lög eftir Dr. Gunna. Salurinn fylltist af stoltum foreldrum og öðrum gestum sem nutu þess að sjá yngstu kynslóðina skína á sviðinu.

Krakkarnir sungu af innlifun og gleði enda hafa þau lagt mikla vinnu í undirbúninginn. Dagskráin samanstóð af þekktum lögum eins og prumpufólkinu og glaðasti hundur í heimi en einnig fluttu krakkarnir nýtt lag sem Dr. Gunni samdi sérstaklega fyrir þetta tilefni en það heitir góðan daginn sól. Áhorfendur tóku vel undir með lófataki og brosum.

Tónleikarnir heppnuðust afar vel og skildu eftir sig gleði og ánægju bæði hjá flytjendum og gestum.