Sumarið heilsaði loksins á Svalbarði þegar kúnum var hleypt út í morgun. Það var sannkölluð hátíðarstund þegar krakkarnir í Álfaborg mættu í heimsókn til að fylgjast með. Bændurnir buðu börnunum að vera viðstödd þegar fjóshurðin var opnuð og kýrnar hlupu glaðar út í fyrsta sinn þetta sumarið.
Það var gaman að sjá gleðina í augum barnanna þegar þau horfðu á kýrnar hoppa og stökkva um túnið.
Svona skemmtilegar heimsóknir eru frábær leið fyrir börnin að læra um dýrin og búskapinn í sveitinni. Allir voru sammála um að þetta hefði verið mjög skemmtileg heimsókn og þökkum við bændunum á Svalbarði kærlega fyrir okkur.
Smellið á myndina til að sjá stutt myndband af kúnum.