Hér í Valsárskóla erum við öll að komast í jólaskap. Bæði nemendur og starfsfólk hafa gert ýmislegt sem minnir á jólin. Við höfum sungið jólalög, skreytt og skemmt okkur. Við skárum laufabrauð á þriðjudaginn og héldum upp á 1. desember m.a. með því að tendra ljósin á jólatrénu og dansa í kringum það.
17. - 18. desember - jólaþema
Næsta miðvikudag og fimmtudag erum við með jólaþema í Valsárskóla. Á miðvikudaginn fara námshópar styttri ferðir og gera sér ýmislegt til skemmtunar. Á fimmtudaginn velja nemendur sér stöðvar og fara á milli þeirra í fámennum hópum þvert á aldur. Auk þess verður klassískur Tarzanleikur í íþróttasal og spiluð félagsvist. Þessa daga lýkur skóla klukkan 13:00 og fer skólabíll frá skóla kl. 13:10 og nemendur fara heim eða í Vinaborg. Á miðvikudeginum fara nemendur í 9. og 10. bekk að þessu sinni í lengri ferð og koma seinna heim.
19. desember - litlu jól í Valsárskóla
Föstudagurinn 19. desember er hátíðisdagur í Valsárskóla og tvöfaldur dagur. Fyrri hlutinn er ,,jóla notalegur dagur” til klukkan 12:00 og fer skólabíll frá skólanum kl: 12:10. Þeir nemendur sem ekki taka skólabíl fara heim kl. 12:00 eða fara í Vinaborg.
Litlu jólin hefjast svo kl. 17:00 og standa til um 19:30. Skólabíll sækir nemendur og keyrir heim. Bíllinn fer frá Akureyri kl. 16:30. Áætlunin er líkt og að morgni nema nú er allt frá 16:00 en ekki 7:00. Eins og áður kom fram lýkur litlu jólunum um kl. 19:30 og þá fara allir heim og skólabíll frá Valsárskóla fer 19:40.
Jólafrí í Valsárskóla
Jólafrí nemenda í Valsárskóla hefst að loknum litlu jólum 19. desember. Hefðbundið skólastarf hefst þriðjudaginn 6. janúar á nýju ári. Starfsfólk kemur til starfa mánudaginn 5. janúar en þá er náms- og starfsdagur kennara.
Vinaborg í jólafríi Valsárskóla
Vinaborg verður lokuð milli jóla og nýárs en starfar 22. desember og 5. janúar. Skráning fyrir þá daga var send á heimilin í gær.
Yfirlit:
17. desember - skóla lýkur kl. 13:00
18. desember - skóla lýkur kl. 13:00
19. desember - skóla lýkur kl. 12:00 og litlu jól eru frá 17:00 til u.þ.b.19:30
6. janúar 2026 - skóli hefst samkvæmt stundaskrá