Jólafrí og fleira í Valsárskóla

Skólastarfið í Valsárskóla gengur vel og erum við öll að komast í jólaskap. Bæði nemendur og starfsfólk hafa gert ýmislegt sem minnir á jólin. Við höfum sungið í matsalnum jólalög, skreytt og skemmt okkur. Við skárum laufabrauð á mánudaginn og héldum upp á 1. desember með því að tendra ljósin á jólatrénu og dansa í kringum það. 

18. - 19. desember - jólaþema
Næsta miðvikudag og fimmtudag erum við með jólaþema í Valsárskóla. Þá velja nemendur sér stöðvar og fara á milli þeirra í fámennum hópum þvert á aldur. Auk þess verður klassískur tarsanleikur í íþróttasal og spiluð félagsvist. Þessa daga lýkur skóla klukkan 13:00 og fer skólabílinn kl. 13:10 og nemendur fara heim eða í Vinaborg.  

20. desember - litlu jól í Valsárskóla
Föstudagurinn 20. desember er hátíðisdagur í Valsárskóla og tvöfaldur dagur. Fyrri hlutinn er ,,jóla notalegur dagur” til klukkan 12:00 og fer skólabíll kl: 12:10 og nemendur heim eða í Vinaborg.
Litlu jólin hefjast svo kl. 17:00 og standa til um 19:30. Skólabíll sækir nemendur og keyrir heim. Bílinn fer frá Akureyri kl. 16:30. Áætlunin er líkt og að morgni nema nú er allt frá 16:00 en ekki 7:00. Eins og áður kom fram lýkur litlu jólunum um kl. 19:30 og þá fara allir heim og skólabíll frá Valsárskóla fer um 19:40. 

Jólafrí í Valsárskóla
Jólafrí nemenda í Valsárskóla hefst að loknum litlu jólum 20. desember. Hefðbundið skólastarf hefst þriðjudaginn 7. janúar á nýju ári. Starfsfólk kemur til starfa mánudaginn 6. janúar en þá er náms- og starfsdagur. 

Vinaborg í jólafríi Valsárskóla
Vinaborg verður lokuð milli jóla og nýárs en starfar 2. og 3. janúar auk 6. janúar. Skráning fyrir þá daga var send á heimilin í dag.  

Yfirlit:
18. desember - skóla lýkur kl. 13:00
19. desember - skóla lýkur kl. 13:00
20. desember - skóla lýkur kl. 12:00 og litlu jól eru frá 17:00 til u.þ.b.19:30
7. janúar 2024 - skóli hefst samkvæmt stundaskrá