Hjóladagur, samfélagslöggan og rigning

Í sumar verða hjóladagar alla miðvikudaga fram að sumarfríi. Fyrsti hjóladagurinn var nú aldeilis skemmtilegur þar sem að samfélagslöggan kom til okkar og spjallaði við okkar um umferðareglurnar, hjálma, bílbetli og fleira. Þau voru líka með leynigest en það var Lúlli löggubangsi og hann vakti heilmikla lukku :) Börnin spurðu spurninga og allir voru glaðir og kátir með þessa heimsókn. Að lokum fengu börnin límmiða á hjólin og það sló í gegn. Við þökkum fyrir heimsóknina sem var yndisleg í alla staði.

Það rignir mikið á okkur þessa dagana en snillingarnir láta það ekki á sig fá og klæða sig eftir veðri, njóta og hafa gaman. Alltaf gaman að finna t.d áðnamaðka og leika með þá og hoppa í pollum.