Haustfundir og aðalfundur foreldrafélagsins

Mynd frá útivistardegi þar sem gengið var um Þengilshöfða.
Mynd frá útivistardegi þar sem gengið var um Þengilshöfða.

Í upphafi skólaárs bjóðum við upp á kynningarfundi með umsjónarkennurum. 

Á kynningarfundi ræða umsjónarkennarar m.a.  fyrirkomulag náms, námsmat, Mentor, stoðþjónustu og fleira. Fundir sem þessir eru ekki bara mikilvægir fyrir okkur hér í skólanum til að miðla upplýsingum og skapa umræður heldur eru þeir líka mikilvægir fyrir foreldrahópinn sem á í flestum tilfellum börn saman í bekk í 10 ár. Ykkar samstaða og stuðningur við nám nemenda og skólastarfið er mikilvægur.

Ferðasjóður 9.-10. bekkjar býður upp á gæslu á meðan á kynningarfundum stendur en ekki meðan aðalfundur foreldrafélagsins verður. Ferðasjóður verður einnig með súpu til sölu fyrir foreldra og börn.

Aðalfundur foreldrafélagsins verður svo í beinu framhaldi kl. 20:15 í matsal skólans.