Foreldraþing í Valsárskóla

Þriðjudaginn 14. nóvember kl: 17:15 - 18:30 verður árlegt foreldraþing í Valsárskóla. 

Foreldraþing er haldið til að fá fram sjónarmið og hugmyndir foreldra varðandi skólastarfið þannig að þeir getið haft meiri áhrif á ýmis mál er snerta starfið. Foreldraþing er nú haldið í þriðja sinn.

Fyrirkomulagið verður þannig að við skiptum fundartímanum niður í nokkur umræðu tímabil. Við verðum með nokkur málefni og hver fundargestur velur sér þau málefni sem hann hefur mestan áhuga á að ræða. Við lok hverrar umræðu verður stutt samantekt.

Dæmi um umræðuefni:

  • Þátttaka foreldra í skólasamfélaginu
    • í hverju?

    • hvernig?

 

    • Samkennsla

    • Námsgreinar

    • Mentor

    • Upplýsingagjöf

    • Námsmat

Ef foreldrar hafið tillögur að umræðuefni væri frábært að fá þær t.d. með símtali eða tölvupósti í síðasta lagi mánudaginn 13. nóvember.