Fjölbreytt skólastarf á haustmánuðum

Skólastarfið í haust fór vel af stað og var fyrsti hluti annarinnar einkar viðburðaríkur þar sem nemendur tókust á við fjölbreytt verkefni og efldu félagsleg tengsl.

Á fyrstu dögum skólaársins voru svokallaðir haustdagar. Annan daginn var farið í sameiginlega gönguferð á Þengilhöfða við Grenivík þar sem nemendur nutu útivistar. Hinn daginn vörðu nemendur tíma í námshópum ásamt umsjónarkennurum sínum þar sem fengist var við hin ýmsu verkefni og hópnum þjappað saman.

Fyrir skömmu fóru nemendur í 9. og 10. bekk í skólaheimsóknir í Verkmenntaskólann á Akureyri og Menntaskólann á Akureyri. Þeir fóru einnig á íþróttamót og kynnisferð Framhaldsskólans á Laugum. Markmið ferðanna var að kynna nemendum fjölbreytta valkosti í framhaldsskólanámi og undirbúa þá undir næstu skref.

Samskóladagur mið- og unglingastigs var einnig haldinn í september. Valsárskóli tók á móti unglingastiginu á meðan miðstigið fór á Þelamörk. Samskóladagar eru samstarfsverkefni þar sem nemendur úr Valsárskóla, Þelamörk, Stórutjörnum og Grenivík verja deginum saman í alls kyns leikjum og hópefli. Tilgangur þessara daga er að efla tengsl og vináttu á milli nemenda í þessum fámennu skólum á svæðinu.

Allir nemendur skólans tóku þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ á dögunum. Hlaupið gekk vel og sýndu nemendur mikla seiglu. Sá sem hljóp flesta hringin fékk viðurkenningu og einnig voru veittar viðurkenningar fyrir skemmtilegustu búningana.

Við vorum með leiðtogaþjálfun í september en hún lá í dvala í fyrravetur. Áætlað er að hafa leiðtogaþjálfun fjórum sinnum þetta skólaárið. Nemendur undirbjuggu og stýrðu ólíkum stöðvum og aðrir nemendur skólans fengu tækifæri til að velja sér verkefni/stöð og allt gekk þetta ljómandi vel.

Félagsstarf skólans hefur farið hægt af stað en starfið fer nú að komast á fullt skrið.

Eins og þið sjáið hefur skólastarfið farið skarpt af stað með hinum ýmsu viðburðum og hér hefur verið talið upp það helsta sem má kalla óhefðbundið. Bekkjarstarfið og almenn kennsla er komið vel af stað og nú styttist í samtalsdag þar sem nemendur, foreldrar og kennari hittast og fara yfir upphaf skólaársins.

Myndir

Með kærri kveðju úr Valsárskóla