Nú styttist í skólaárinu 2025-2026 í Valsárskóla. Fimmtudaginn 4. júní verður síðasti hefðbundni skóladagurinn samkvæmt stundaskrá og svo taka við vordagar, vorhátíð, skólaslit og sumarfrí hjá nemendum. Hér er stutt yfirlit yfir dagana svo allir séu undirbúnir í útivist og klæddir fyrir það sem við tökum okkur fyrir hendur.
5. - 9. júní lýkur skóla kl. 13:00 og nemendur fara heim eða í Vinaborg. Skólabíll fer 13:10 frá skólanum.
Föstudaginn 5. júní munu allir nemendur og starfsfólk skólans fara saman til Akureyrar og skemmta sér á hinum ýmsu stöðum í og við Innbæinn. Við byrjum öll saman í Skautahöllinni og að því loknu fara nemendur í smærri hópum á þrjár stöðvar. Farið verður í Nökkva, í sögugöngu um innbæinn og leiki og fjör í nágrenni Laxdalshúss. Mjög mikilvægt er að nemendur séu vel búnir til þess að ganga á milli þessara staða og hafi með sér:
-Útiföt í samræmi við veður.
-Auka föt (líka sokka og skó/stígvél) þar sem þau geta blotnað í Nökkva
-Vatnsbrúsa
-Bakpoka undir þetta allt.
Nemendur fá morgunmat í skólanum áður en lagt verður af stað, hressingu eftir skauta og nesti í hádeginu áður en haldið er aftur heim.
Mánudaginn 8. júní verða umsjónahópar saman og taka sér ýmis verkefni fyrir hendur. Umsjónarkennarar gefa nánari upplýsingar um fyrirkomulag.
Þriðjudaginn 9. júní er vorhátíð á skólalóð með margskonar leikjastöðvum, hefðbundnum kappleikjum s.s. reiptogi, eggjakast og fleiru. Fastur liður í þeirri dagskrá er fótbolti milli námshópa og starfsfólks sem alltaf er æsispennandi. Við endum svo vorhátíðina á árlegum vatnsslag sem enginn kemst þurr frá. Í vatnsslagnum er hentugast að vera með litla dalla eða fötur. Tekið skal fram að ekki er í boði að vera með einhvers konar vopn í slagnum s.s. vatnsbyssur eða einhverskonar dælur. Vatnsblöðrur eru líka á bannlista. Það skal samt tekið fram að ef einhver vill ekki taka þátt í vatnsslag er ákveðið ,,þurrsvæði” þar sem hægt er að vera á. Gott er að hafa með sér handklæði og auka föt þennan dag.
Þriðjudaginn 9. júní kl. 16:15 eru skólaslit á sal. Þangað eru allir foreldrar og aðstandendur nemenda velkomnir. Þar verður öllum nemendum afhent námsmat, nemendur í 10. bekk útskrifaðir og skólanum slitið. Að dagskrá lokinni er ferðasjóður með veitingasölu í matsalnum. Ekki er skólaakstur á skólaslit.