Gleðilegt sumar

Við viljum minna á að á morgun er sumardagurinn fyrsti og því er frí í skólanum. Föstudagurinn er einnig frídagur í Valsárskóla, þar sem hann kemur á móti tvöföldum degi. Af þeim sökum er þessi skólavika aðeins þrír dagar. Athygli er vakin á því að Vinaborg verður opin á föstudaginn fyrir þau börn sem eru skráð þar.

Við viljum jafnframt upplýsa ykkur um að í Valsárskóla hafa verið mótuð viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn. Ferlið hefur verið rætt á kennarafundum og í skólaráði og hefur jafnframt verið staðfest af skólanefnd. Nýju viðbrögðin munu taka gildi frá og með næsta skólaári.

Í þessu samhengi viljum við einnig minna foreldra á að nýta skóladagatalið við skipulagningu ferðalaga og frídaga. Í dagatalinu kemur skýrt fram hvenær ekki er skólastarf, svo sem í haustfríi, vetrarfríi, jólafríi, páskafríi og sumarfríi.

Öll heimili ættu að hafa fengið plastað skóladagatal, en það er einnig aðgengilegt á heimasíðu skólans. Ef ykkur vantar dagatalið biðjum við ykkur vinsamlegast að láta vita og við sendum það heim með börnunum ykkar við fyrsta tækifæri.

Viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn 

Þrep 1 
1–10 fjarvistir úr kennslustund án skýringa.
Umsjónarkennari hefur samband við foreldra. 

Þrep 2 
15 veikinda-/leyfisdagar 15 fjarvistir úr kennslustund án skýringa.
Fundur með foreldrum og nemanda. Úrbætur ræddar. 

Þrep 3 
20 veikinda-/leyfisdagar 20 fjarvistir úr kennslustund án skýringa.
Fundur með skólastjóra og áætlun gerð fyrir næstu 4 vikur. 

Þrep 4 
21 veikinda-/leyfisdagar 21 fjarvistir úr kennslustund án skýringa. 
Aðkoma skólaþjónustu eða velferðarsviðs. 

Þrep 5 
Ef ekki næst árangur: Málinu vísað til barnaverndar. 

Tekið er tillit til langveikra nemenda og sérstakra aðstæðna.

Gleðilegt sumar, með kveðjur úr Valsárskóla