Nú liggja niðurstöður Skólapúlsins fyrir sem nemendur svöruðu í október 2024.
Skólapúls er könnun sem nemendur í 6. - 10. bekk svara árlega um virkni í skólanum, líðan og heilsu og skóla- og bekkjaranda. Könnunin er okkur mikils virði þar sem svör nemenda í Valsárskóla eru borin saman við svör nemenda í sambærilegum skólum á Íslandi. Auk þess eru svör nemenda borin saman milli ára. Með þessu móti koma fram upplýsingar sem eru okkur gagnlegar við mat á skólastarfinu og til að gera úrbætur. Niðurstöðurnar í heild sinni má sjá á heimasíðu skólans.
Í stuttu máli eru svör nemenda í Valsárskóla áþekk svörum nemenda í grunnskólum á Íslandi í lang flestum tilfellum.
Virkni í skólanum
Sex þættir af átta um virkni í skólanum eru í samræmi við svör annarra nemenda á Íslandi en tveir þættir skera sig úr. Fyrri snýr að þrautseigju í námi og sá seinni að áhuga á náttúrufræði.
Nemendur í Valsárskóla hafa svarað spurningum sem snúa að þrautseigju í námi á svipaðan hátt undanfarin ár. Skortur á þrautseigju kemur fram í svörum við spurningum eins og þessum:
- Þegar ég læri, legg ég eins hart að mér og mögulegt er.
- Þegar ég læri þá held ég áfram jafnvel þó efnið sé erfitt.
- Þegar ég læri, reyni ég að gera mitt besta til að ná tökum á þeirri þekkingu og hæfni sem verið er að kenna.
- Þegar ég læri legg ég mig allan fram.
Ár eftir ár kemur fram að nemendur okkar virðist skorta seiglu og kraft til að takast á við krefjandi verkefni. Það er jákvæð breyting að trú nemenda á eigin námsgetu sem er nú lítillega fyrir ofan meðaltal og einnig trú á eigin vinnubrögð. Áhugi á náttúrufræði hefur dalað en hefur fyrri ár verið fyrir ofan meðaltal. Áhugi á stærðfræði og lestri er fyrir ofan meðaltal líkt og síðustu ár.
Líðan og heilsa
Þættir um líðan og heilsu eru í samræmi við svör annarra nemenda á Íslandi. Einn þáttur sker sig úr og snýr hann að mötuneytinu. Mikil ánægja er með mötuneytið og er það langt fyrir ofan mötuneyti í öðrum grunnskólum á landinu. Slíkur munur er sjaldséður.
Nemendur svara spurningum um einelt og stjórn á eigin lífi á jákvæðari hátt en á síðasta skólaári. Sjálfsálit nemenda og einelti meðal þeirra er metið verr en í öðrum skólum þó að sá munur sé ekki marktækur.
Skóla- og bekkjarandi
Þegar spurt er um skóla- og bekkjaranda kemur fram að nemendur telja aga í kennslustundum betri í Valsárskóla en annars staðar. Aðrir þættir er á pari við svör nemenda almennt á landinu. Nemendur okkar eru jákvæðir í samandi við virkni í kennslustundum, tíðni leiðsagnarmats og samband sitt við kennara. Samsömun við nemendahópinn er fyrir neðan meðaltal. Nokkrir nemendur telja sig eiga erfitt með að eignast vini og finnst þeir stundum utanveltu.
Opnar spurningar
Við opnum spurningum kom fram að nemendum finnst jákvætt hvað skólinn er fámennur, maturinn góður, kennarar og annað starfsfólk gott, auk vina og félaga. Það sem nemendum fannst neikvætt er fátt og það sem nefnt er ekki einróma. Margir nefna að það sé ekkert neikvætt við skólann.
Við hvetjum ykkur til að skoða niðurstöðurnar í heild en þær eru aðgengilegar hér: