Draugaleg hrekkjavaka í Valsárskóla

Það var heldur betur líf og fjör í Valsárskóla síðusta föstudag þegar haldið var upp á hrekkjavökuna með pompi og prakt. Nemendur og starfsfólk tóku virkan þátt og alls kyns kynjaverur voru á sveimi um skólann. Þar mátti sjá nornir, drauga og ýmsar furðuverur sem settu óvenjulegan svip á skólastarfið.

Nemendur í 8.–10. bekk sáu um að útbúa hinn árlega draugagang sem vakti bæði spennu og eftirvæntingu. Þar var tekið á móti nemendum og þess gætt að aðlaga upplifunina að aldri og þroska hvers hóps, svo allir gætu notið hennar á sínum forsendum.

Á miðstigi var farið í graskersútskurð þar sem sköpunargleðin fékk að njóta sín og úr urðu hinir ýmsu skrautlegu og skelfilegu graskerskarlar. Í bekkjunum var síðan boðið upp á hrekkjavökubíó, leiki og spil og ríkti mikil gleði og góð stemning.

Dagurinn heppnaðist einstaklega vel og var kærkomin tilbreyting frá hefðbundnu skólastarfi.

Við þökkum öllum nemendum og starfsfólki fyrir frábæra þátttöku og sérstaklega nemendum í 8.–10. bekk fyrir metnaðinn og vinnuna við draugaganginn.

Það er óhætt að segja að hrekkjavakan hafi tekist með eindæmum vel!