Ágætu foreldrar og forráðamenn
Skólasetning er kl: 16:00 í dag og er hún frekar óvenjuleg. Nemendur koma án foreldra og verður skólinn settur í umsjónarstofum. Foreldrar nemenda í 1. - 2. bekk eru velkomnir og verður tekið á móti þeim í matsalnum þar sem þar er hægt að tryggja 2 m regluna.
Þriðjudagurinn 25. ágúst og miðvikudag 26. ágúst verða útivistardagar og þá lýkur skóladeginum kl: 13:00.
Á þriðjudagurinn verðum við í útivist í Kjarnaskógi. Á miðvikudaginn verða yngri nemendur í Vaðlareit og eldri nemendur ganga á Ystavíkurhnúk. Nemendur fá nánari upplýsingar um fjallgönguna hjá umsjónarkennara á þriðjudag. Báða dagana notum við rútu í milliferðir.
Þessa daga þurfa nemendur að vera klæddir eftir veðri, vel skóaðir og gott er að hafa léttan bakpoka, vatnsbrúsa og jafnvel ílát undir ber. Ekki þarf að taka með nesti því skólinn sér um það.
Með ósk um gott skólaár, kveðjur frá starfsfólki Valsárskóla
Álfaborg Svalbarðseyri | 606 Akureyri Sími: 464 5505 Netfang: alfaborg@svalbardsstrond.is |
Valsárskóli Svalbarðseyri | 606 Akureyri Sími: 464 5510 Netfang: valsarskoli@svalbardsstrond.is |
Tónlistarskóli Eyjafjarðar
Sími 464 8110 |
Vinaborg - frístund Sími 832 4530 Skólabíll Sími: 858 0777
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda skráist hjá skólanum eða á mentor.is.