Bréf til foreldra í Valsárskóla 22. apríl 2022 - sund

Sundkennsla hefst mánudaginn 25. apríl og mun Viktor Emil sjá um kennsluna. Sundið verður á sömu dögum og íþróttir hjá öllum nema 7. - 8. bekk.  Við skiptum 7.-10. bekkur í tvo hópa í sundi og þá breytist taflan aðeins hjá 7.-8. bekk. 

     1. - 2. bekkur verður í sundi á mánudögum og föstudögum.

     3. - 4. bekkur verður í sundi á þriðjudögum og föstudögum.

     5. - 6. bekkur verður í sundi á þriðjudögum og fimmtudögum.

     7. - 8. bekkur verður í sundi á mánudögum og fimmtudögum.

     9. - 10. bekkur verður í sundi á þriðjudögum og fimmtudögum.