Bréf til foreldra í Valsárskóla 17. ágúst 2022

Nú styttist í nýtt skólaár og erum við spennt að fá nemendur í hús. Þessa dagana erum við að undirbúa skólastarfið ásamt sí- og endurmenntun. 

Skólasetning
Skólasetning verður mánudaginn 22. ágúst kl. 16:15 á sal Valsárskóla. Við hlökkum til að hitta ykkur og vonumst til að sjá sem flesta. Líklega verður veitingasala á vegum ferðasjóðs.     

Skólabyrjun
Skólinn hefst með haust- og útivistardögum þriðjudaginn 23. ágúst og munum við verða sem mest úti með nemendum þriðjudag og miðvikudag. Gott er að nemendur hugi að því vera klæddir eftir veðri. Þá tvo daga lýkur skólanum kl: 13:00. Hefðbundið skólastarf hefst svo fimmtudaginn 25. ágúst samkvæmt stundaskrá. Þann dag hefst einnig sundkennsla. 

Skólabíllinn
Áætlun fyrir skólabílinn er klár og verður send á þau heimili sem nýta bílinn í vikunni. Sú áætlun fer líka á heimasíðu skólans en gæti verið uppfærð eftir 1-2 vikur ef tímasetningar passa ekki. Við hvetjum ykkur til að hafa samband ef þið sjáið að áætlunin er óhagstæð. 

Vinaborg
Vinaborg hefur starfsemi mánudaginn 23. ágúst og er opin allan þann dag. Eftir það verður hún opin daglega eftir kennslu til 16:15. Allir þeir sem ætla að nýta Vinaborg eru hvattir til að skrá sín börn í gegnum heimasíðu skólans, senda tölvupóst eða hringja í Gísla, umsjónarmann Vinaborgar í síma 8324530. Öll heimili nemenda í 1. - 4. bekk fá tölvupóst með nánari upplýsingum um Vinaborg og starfið þar á næstu dögum. 

https://skolar.svalbardsstrond.is/is/valsarskoli/umsokn-um-vistun-i-vinaborg

Tónlistarskóli Eyjafjarðar
Stjórnendur Tónlistarskóla Eyjafjarðar komu hér í síðustu viku til að skipuleggja starfið. Kennslan fer þannig fram að sumir nemendur fara úr kennslustundum í tónlistartíma, aðrir úr Vinaborg og enn aðrir fara eftir kennslu í Valsárskóla. Tekið er tillit til nemenda sem nota skólabíl. Skipulagið er þannig að þeir sem fara úr hefðbundnum kennslustundum fara ekki alltaf úr sömu kennslustund en eru alltaf í tónlistarnámi á sömu vikudögum.  

Skóladagatal
Skóladagatal Valsárskóla er aðgengilegt á heimasíðu skólans og þar eru einnig upplýsingar um skólann. Öll heimili fengu skóladagatal í vor, ásamt skýringum, og hvetjum við ykkur til að hafa það við hendina. Ef það hefur glatast, hafið samband og við sendum við ykkur það sem fyrst.  

https://skolar.svalbardsstrond.is/static/files/skoladagatal-2022-2023-valsarskoli-samthykkt-i-skolanefnd.pdf 

Við hvetjum ykkur til að vera í sambandi við umsjónarkennarann, skólastjóra og annað starfsfólk ef eitthvað er óljóst í skólastarfinu. Við sem störfum í skólanum sjáum kannski ekki alltaf hvaða upplýsingar vantar. Þægilegt er að senda tölvupóst eða hringja í skólann.

Mætingar í skólann og leyfi
Vegna mikilla forfalla og leyfa á síðasta skólaári, sem e.t.v. er ekki alveg marktækt vegna COVID, ætlum við að minna foreldra á að leggja áherslu á að skipuleggja ferðalög og frí eins og hægt er eftir skóladagatalinu. Ef nemandi þarf stutt leyfi er best að hafa beint samband við umsjónarkennara. Ef leyfið er 3 dagar eða lengra er best að senda tölvupóst á skólastjóra eða nota heimasíðuna: https://skolar.svalbardsstrond.is/is/valsarskoli/foreldrar/beidni-um-leyfi-nemanda 

Við minnum foreldra líka á að senda nemendur ekki í skólann nema þeir geti tekið þátt í öllu skólastarfinu.