Í maí notum við tímann hérna í Álfaborg til þess að fræðast um umferðina og öryggi á ýmsa vegu en með betra veðri eykst útiveran mikið bæði í leikskólanum og utan leikskóla. Núna síðasta föstudag vorum við með uppbrotsdag sem við köllum Innipúkann. Við notum efnið um Krakkana í Kátugötu og Innipúkann til þess að fræðast um það hvað sé öruggt og hvaða reglur eru í umferðinni, við hlustum á sögurnar, skoðum bækurnar, litum myndir og ýmislegt annað tengt þessu. Krummar, elsti hópur leikskólans, taka þátt í Umferðarskólanum hérna í Álfaborg en þar er farið ítarlegra yfir þessi atriði.
Leikskólinn á nokkra Innipúka sem börnin fengu að leika sér með, börnin á Rjóðri gerðu meðal annars sjúkrabíl og sjúkrahús úr segulkubbum fyrir hann eftir að hafa lent í óhappi í umferðinni.
Inni á vefsíðunni https://umferd.is/ er ýmislegt efni sem er gott að skoða tengt umferðaröryggi sem við mælum með.