Bleikur dagur í Álfaborg

Í dag fögnuðum við Bleika deginum, bæði starfsmenn og nemendur tóku þátt í deginum með því að vera í einhverju bleiku og vinna með bleikan efnivið í tilefni dagsins. Nemendur voru búnir að gera bleikar slaufur sem hanga uppi í leikskólanum, voru með t.d. bleikar perlur, liti og blöð til að föndra úr, bleikar blöðrur og þau sem vildu fengu bleika andlitsmálningu.

Bleiki dagurinn er árlegur og mikilvægur viðburður sem við tökum alltaf þátt í til þess að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini.