Árshátíð Valsárskóla verður fimmtudaginn 21. mars kl. 17:00 í íþróttasal Valsárskóla.

Árshátíð Valsárskóla verður fimmtudaginn 21. mars kl. 17:00 í íþróttasal Valsárskóla.

Þar munu allir námshópar sýna atriði og eru foreldrar og aðrir sem tengjast nemendum velkomnir.
Ferðasjóður nemenda selur inn á árshátíðina og kostar 1500 kr. fyrir alla sem eru vaxnir upp úr grunnskóla.

Um morguninn ætlum við að baka Subway kökur vegna fjáröflunar fyrir styrktarbarn Valsárskóla, hann Abdul, en skólinn hefur undanfarin ár styrkt ABC barnahjálp. Vinnan við baksturinn fer fram í skólanum og taka allir nemendur þátt í henni.

Eftir sýninguna geta foreldrar, nemendur og aðrir gestir sest niður og spjallað í matsal skólans. Þar verður hægt að kaupa sér Subway köku, kaffi og mjólk. Þannig er ætlunin að gefa fólki tækifæri til að njóta þess að hittast og spjalla. Ef einhverjir eru tímabundnir þá er hægt að kaupa kökur og taka með heim.

Hver kaka verður seld á 300 kr. kaffi, vatn, mjólk og kaffi verður í boði fyrir þá sem vilja.

Þennan dag fara nemendur heim á hefðbundnum tíma eða í Vinaborg. Nemendur mæta svo aftur síðdegis eða klukkan 16:30 í síðasta lagi. Skólabílinn fer frá Akureyri og tekur nemendur. Bílinn fer frá Akureyri kl. 16:00 og er áætlunin eins og að morgni. Ekki verður heimferð með skólabíl þar sem við reiknum með að nemendur fari heim með sínu fólki.