Afmæli Álfaborgar

Sunnudaginn 15. mars átti leikskólinn Álfaborg 33ja ára afmæli. Haldið var upp á afmælið síðastliðinn föstudag með sameiginlegri söngstund um morguninn, þá hittust allir í leikskólanum saman og sungu afmælissönginn ásamt fleiri lögum.

Börnin fóru í heimsóknir á milli deilda eftir söngstundina og mikið var um hlátur og gleði yfir daginn. Afmælisdagurinn endaði á því að fá dýrindis afmælisköku í kaffitímanum.