17. júní

Á mánudaginn fóru allir í Álfaborg í skrúðgöngu í tilefni af 17. júní. Gengið var um Laugartún og Smáratún, stóri hátalarinn var með í för og var einnig vel tekið undir hátíðarsönginn. Börnin fengu að sjálfsögðu íslenska fánann og blöðrur fyrir brottför. Ekki var annað að sjá en að allir hafi skemmt sér vel :)