Boðað er til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október undir yfirskriftinni „Kallarðu þetta jafnrétti?“
Á fjórða tug samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks standa að verkfallinu og munu konur og kvár þá leggja niður störf sé þess nokkur kostur.
95% starfsfólks Álfaborgar ætlar að leggja niður störf þennan dag, við sjáum ekki annan kost en að loka leikskólanum 24. október nk. Dvalarvist verður ekki rukkuð fyrir þennan dag.