Tilkynningar til barnaverndar

Eftirfarandi verklagsreglur gilda hjá Álfaborg/Valsárskóla varðandi tilkynningar til barnaverndarnefndar.

  1. Vakni grunur um vanrækslu eða eitthvað sem hugsanlega ber að tilkynna til barnaverndarnefndar skal starfsmaður leita til næsta yfirmanns þar sem tekin er afstaða varðandi meðferð og framhald málsins.

  2. Sé tekin ákvörðun um að tilkynna, er gert ráð fyrir að tilkynnt sé í nafni skólans og að tilkynningin sé á ábyrgð stofnunarinnar en ekki einstakra starfsmanna. Stofnunin nýtur ekki nafnleyndar sbr. 19. gr. barnaverndarlaganna.

  3. Skrá skal hvað veldur því að tilkynnt er og skal það fylgja tilkynningunni.

  4. Haldinn skal tilkynningafundur með foreldrum og starfsmanni barnaverndarnefndar til að tilkynna. (nema vegna gruns um einhverskonar ofbeldi), þar sem foreldrar eru látnir vita af tilkynningunni og gera þeim grein fyrir því að skólinn sé þannig að fylgja lagalegri skyldu sinni. Nauðsynlegt er að fram komi með skýrum hætti að málið snúist um velferð barnsins og stuðning við það fremur en ásökun í garð foreldra, og hvernig málið verður unnið af barnaverndarstarfsmönnum.

  5. Sé grunur um ofbeldi eða kynferðislega misbeitingu innan heimilis skal tilkynnt strax án vitundar forráðamanna.

  6. Einungis þeir sem nauðsynlegt er að viti um tilkynninguna skulu hafa vitneskju um hana.

  7. Sé ekki eining um að tilkynna skal leita ráðgjafar hjá starfsmanni barnaverndarnefndar og skal hverju samtali (máli) ljúka með tilkynningu eða lokun máls.

Með þessum verklagsreglum er til þess ætlast að starfsfólk skólanna meti hvort ástand, líðan eða umönnun barns sé þannig háttað að tilkynna eigi um það til barnaverndarnefndar þar sem barnið býr.

Tilkynna þarf um grun ekki aðeins staðfestar sannanir. Það er síðan barnaverndarnefnd og/eða starfsmenn hennar sem meta hvort grunur sé nægilega rökstuddur og taka ákvörðun um frekari könnun í framhaldi af því.

Starfsmaður barnaverndarnefndar getur ekki gefið skólanum upplýsingar um hvernig máli vindur fram nema með leyfi foreldra/forráðamanna.

Mikilvægt er fyrir barnaverndarnefndir að eiga greiðan aðgang að nauðsynlegum upplýsingum um börn og foreldra við könnun barnaverndarmáls til að meta aðstæður barnsins. Upplýsingaskyldan gildir óháð því hvort viðkomandi stofnun hefur tilkynnt um málið til barnaverndarnefndar eða ekki.